víst er fagur Vestmannaeyjabær

keing vangefin alveg....

04.02.2008 14:51:15 / selfossar

NÝTT BLOGG

Já kellingin er hætt með þessa síðu í bili og kveð hana með tárum og þakka ykkur samfylgdina í gegnum súrt og sætt. Ég ákvað, þar sem sumir eru með gullfiskaminni og geta þar með ekki munað slóðina á þessa síðu, að reyna að finna auðveldari síðu og það tókst. Verið velkomin í kaffi og kökur á nýju síðuna ;) www.kitta.blog.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 16:08:11 / selfossar

sniglakássa og marhnútabrauð....

já ég hef ekki hugmynd hvað ég á að hafa í matinn... ég er að spá í að hafa sniglakássu og marhnútabrauð.... HVER VILL KOMA Í MAT???  hehehe....

En allavega.... Ég var heldur betur veðurteppt í morgun... það var gjörsamlega geðtruflað veður á leiðinni í bæinn og það tók mig 3 tilraunir að komast... ég lagði af stað fyrt um 8:45 og snéri við hjá samkomu gerði... það sama gerðist í tilraun 2 og svo loksins rétt fyrir hádegi tókst mér að komast alla leið ;) hehe... mér finnst nú alltaf lumskt gaman af þessu... kannski festa sig og kannski fara útaf og kannski deyja... þetta er viss áhætta ;) hehehe....

Annars er allt sæmó að frétta... við erum að jafna okkur eftir gubbuna... Skjöldur fékk nú reyndar hita með þessu en þetta er allt að koma...

Petra er bara hress... Hún er ekki ennþá búin að læra að pissa og kúka úti en þetta komur vonandi... þetta er svo mikill kjáni þessi elska ;)

En já Mývatn um helgina.... ruddu kellingadjamm ;) Við ætlum að fara seinnipart á laugardag og koma aftur seinnipart á sunnudag. Það sem er planað er að borða 3ggja rétta máltíð á laugardagskvöldið og svo verður bara djamm eftir það... Svo vaknar maður á sunnudaginn, fer í útigallann, í gógart, ískeilu og svo í jarðböðin á eftir og svo heim ;)

Ég ætla að skella hérna með einum stuttum brandara sem mér fannst helvíti góður ;)

 

Maður nokkur var að aka bíl sínum heim í mikilli rigningu, þegar hann sér unga konu við bilaðan bíl sem veifar til hans, Maðurinn tekur konuna gegnvota upp í, og spyr hvert hún sé að fara, hún segist vera á leið í næsta bæ, Maðurinn býður henni því heim, þar sem stutt var heim til hans og hún rennvot. Þegar heim er komið, eru skilaboð frá konunni hans að hún hafi farið út að hitta vinkonur sínar.

Nokkru seinna kemur frúin heim og fer upp í svefnherbergi, og sér þar manninn sinn vera í samförum við ókunnuga konu. Konan hleypur niður og maðurinn á eftir, og í miðjum stiganum meðan hann hysjar upp um sig buxurnar kallar hann, "ég get útskýrt" konan stoppar og segir "ég myndi elska að heyra þig útskýra þetta". "

Sko, ég var að keyra heim og stoppa fyrir konunni þar sem hún stóð út í rigningunni og bauð hjálp mína, svo komum við hingað og hún spurði mig hvort konan mín ætti einhver gömul föt til að lána henni"! , "ég sagði þá að þú ættir buxur sem þú væri löngu hætt að nota, og blússu sem þú værir löngu, löngu hætt að nota, einnig lét ég hana hafa sokka og skó sem þú varst löngu síðan hætt að nota, og að endingu lét ég hana hafa jakka sem þú varst fyrir lifandis löngu hætt að nota".

Svo sagði maðurinn daufum orðum, "svo spurði stúlkan mig hvort það væri eitthvað fleira sem þú værir hætt að nota".

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 10:22:22 / selfossar

jámms og jæja....

það er allt með kyrrum kjörum á Akureyri eins og er.... fínasta veður og samkvæmt okkar starfsmönnum í rvk. er aftaka veður þar og fólk veðurteppt og allt saman :S Við værum nú samt alveg til í að fá eitthvað af þessum snjó sem er komin í eyjum... Mamma segist bara ekki vita hvar þetta endar, það snjóar alltaf bara meira og meira....!!

En það er mjög skemmtilegt að segja frá því hvað fyrsta verk mitt var þennan daginn. Við lokum Petru frammi í gangi yfir náttina og svo þegar Skjöldur vaknar hleypir hann henni út í smá stund og svo fer hann í vinnu. Ég vaknaði við Petru um hálf 8 í morgun, fer fram að tékka á henni, þá hafði ég gleymt að loka veskinu mínu og ekki einn hlutur eftir ofaní því.... hún hafði tekið einn hlut í einu uppúr og dreyft öllu út um allt!! Kristín þurfti því að taka allt saman og setja aftur í töskuna.... svo lögðum við okkur í smá stund og Petra fékk að vera uppí!! (ekki segja Skildi það... hann verður brjálaður ;) ) hehehe....

Mig dreymdi alveg furðulegan draum í nótt. Mig dreymdi að ég væri heima hjá mömmu inní stofu og stofuglugginn var fullur að blómum í vösum en það var ekkert vatn á þeim... ég labbaði inn í eldhús og þegar ég kom aftur inn í stofu voru allir vasarnir á hliðinni og blómin öll ó gólfinu. Ég náði í moppu og vaknaði þegar ég var að byrja að sópa öllum blómunum saman. Alveg furðulegur draumur..... Svo í gær dreymdi mig að Gunnar Smári væri í barnaafmæli hjá Betsý systur mömmu. En um leið og ég sá hann þar þá fattaði ég að mig var að dreyma og hann gæti ekki verið staddur í barnaafmæli í Vestmannaeyjum. Stundum er maður ekki eins klikkaður og maður lítur út fyrir að vera. 

Það er skemmtilegt frá því að segja að ég er að horfa hér út um gluggann í þessum töluðu orðum og það er byrjað að snjóa hjá okkur ;) jibbííí.... ;)

Ég er svo að fara í heimsókn til Erlu Skarp í kvöld, hún bauð okkur hérna í vinnunni að koma á tupperwear kynningu ;) ýkt góð við okkur ;) Skjöldur ætlar að koma með í bæinn og kíkja í heimsókn til Eiríks á meðan. Svo ætlum við að kaupa okkur nammi, taka vídeo og hafa það náðugt. Svo er ég að vinna á morgun þannig að maður fer nú snemma að sofa í kvöld ;)

Ég hef nú kannski ekkert meira merkilegt að segja í bili enda líka alveg búi að segja nóg... hehehe.... vil nú ekki drepa ykkur úr leiðindum.

Maður dagisns: Nú kjósið þið mann dagsins í commenti!!! KKKOOOOOMMAA SVOOOO KKJJJÓÓÓÓSSSSAAAA!!!!!!!!!!!!!!!!!

Orð dagsins: Berjumst gegn verðbólgu   -étum þá ríku.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 11:36:54 / selfossar

Bæn hundsins!!

Ég lifi varla lengur en 15 ár. Mér líður illa án þín.
Hugleiddu það áður en þú tekur mig að þér.
Gefðu mér tíma og svigrúm til að skilja til hvers þú ætlast af mér.
Hrós þitt og umbun er sem sólargeisli,
refsing er þungur dómur.
Reiðstu ekki sakleysi mínu, ég vil þér vel.
Þú átt þína atvinnu, þínar ánægjustndir og þína vini.
Ég á aðeins þig.
Talaðu við mig.
Enda þótt ég skilji ekki mál þitt,
þá skil ég tón raddar þinnar.
Augu mín og látbragð eru mín orð.
Áður en þú slærð mig, bið ég þig að muna,
að með beittum tönnum get ég kramið hönd þína,
en ég mun aldrei beita þig ofbeldi.
Ef þér finnst ég leiðinlegur, vegna annríkis þíns,
mundu þá að stundum líður mér illa og verð pirraður
t.d. í sólarhita.
Annastu mig þegar ég verð gamall.
Án þín er ég hjálparvana.
Deildu með mér gleði þinni og sorgum.
Veittu mér hlutdeild í lífi þínu,
því ég elska þig.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 10:23:54 / selfossar

fljúandi rófustappa og syndandi kartöflumús.

já börnin mín... þá er komið að smá bloggi. Við erum búin að vera afar róleg síðustu daga. Ég elska að kúra bara í sófanum með kallinn öðrumegin og Petru ofaná mér. Það er bar yndislegt ;)

En veðrið hér er annars alveg frábært. Við fengum ekkert af þessu brálaða veðri sem var á suðurlandinu!! Við líka búum í algjörri veðursæld og verðum nánast aldrei vör við nein læti í þessu veðri.

En í dag 23.janúar eru 35 ár síðan eldgosið hófst á Heimaey. Það fer alltaf hrollur um mann þegar maður hugsar um það að allir hafi þurft að fara frá eyjunni með fiskibátum og skilja allt sem þeir áttu eftir... svo smátt og smátt annað hvort kveiknaði í húsum eða askaði yfir þau. Hrikalegt og þetta fólk sem að snéri aftur eftir gos finnst mér eiga skilið heiðursorðu ;)

En það er annars allt gott að frétta af okkur, Petra ekki ennþá búin að læra að pissa og kúka úti þannig að við erum í full time jobbi að þurrka upp eftir hana!! Mér finnst bara of snemmt að fara að skamma hana fyrir þetta, hún er bara svo rosalega und ennþá... en það kemur síðar ;)

Ég er búin að plana eyjaferð 14.febrúar, ætla að koma heim og tæma íbúðina og skrifa undir og sonna. Svo er starfsmannadjamm á mývatni 2.febrúar og það er þorrablót 9.febrúar og svo á skjöllinn afmæli 20.febrúar, svo kemur rólegur mars og svo förum við út á Kanarí 1.apríl ;) Hversu klikkað verður það ??? vúúhúú....

Annars er allt gott að frétta úr eyjunum skv. síðustu fréttum, mamma hélt, þegar ég talaði við hana í morgun að bæði fréttirnar og kastljós yrfði sent út frá eyjum í kvöld þar sem að 35 ár eru frá byrjun eldgosins. Það verður spennandi að fylgjast með því ;) þið lofið að veifa mér ef þið komið í sjónvarpinu ;) hehehe....

En annars ætla ég ekki að hafa þetta mikið lengra.... vil ekki drepa ykkur úr leiðindum ;) hehehe.... Far vel ;)

Orð dagsins:

Of mikið af húsverkum getur valdið heilaskemmdum !

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 12:29:55 / selfossar

Hvutti hvutt....

ohhhh... hún Petra mín er svo yndisleg.... við Skjöldur högum okkur eins stolltir foreldrar ;) ótrúlega ánægð með litlu snúlluna!! Hún fékk að sofa uppí fyrstu nóttina en í gær var bara harkan og hún svaf frammi á gangi í alla nótt.... sem betur fer vældi hún ekki mikið í nótt og var ótrúlega dugleg miðað við að vera ein fyrstu nóttina sína og vera bara 6 vikna ;) yndislegust alveg :*****

Petra er hjá Emblu og Freyju núna og ætlar að fá að vera þar næstu daga á meðan ég er í vinnunni. Svo fer nú að styttast í að Petra verði nógu stór til að fara með Skildi í vinnuna ;) Þau verða flott saman í beljunum ;)

Annars er bara gott að frétta... ég er að skána af þessari pest sem ég var með um helgina og vona að þetta sé bara búið... alveg óþolandi að fá svona pest rétt fyrir helgi!!!

Veðrið er alveg yndislegt á norðurlandinu núna! það er sól en það er samt pínu kalt eða -8°c en það er nú allt í lagi ;) Við vorum bara róleg í gær, buðum Kolla, Freyju og Emblu í læri og með því ;) svo spiluðum við kana í smá stund og svo kíktum við Skjöldur smá sveitarúnt í góða veðrinu ;)

Hvað er samt málið með þennan Bobby Fischer ???? Hundleiðinlegur alkahólsjúklingur.... nei ég segi svona... en það er bara eins og forsetinn hafi látist, heill fréttatími um þennan kall og þvílik sorg í gangi sko... KOMMON!!!!!

Svo er þetta það hrikalegasta sem ég hef lesið í langan tíma og kveð ykkur að sinni með þessari hrikalegu frétt, af mbl.is, sem fær mann til að hugsa um það hvað sumir eru ógeðslegir og eiga ekki skilið að hafa fæðst í þennan fallega heim.

Morð á tveimur ungum konum og börnum þeirra hafa valdið miklu uppnámi í Indianapolis í Bandaríkjunum. Konurnar tvær, Gina Hunt og Andrea Yarrell, sem báðar voru 24 ára, héldu á börnum sínum, Jordan sem var ársgamall og Charlii, sem var 5 mánaða, þegar að var komið sl. mánudag. Fjórir karlmenn hafa nú verið handteknir, grunaðir um morð og rán. Þeir eru allir búsettir í Indianapolis en einn þeirra gaf sig fram við lögreglu og sagðist hafa verið viðstaddur en ekki tekið þátt í morðunum. Lögreglan hefur ekki viljað upplýsa hvað mönnunum gekk til.

Bæði konurnar og börnin voru skotin oft í andlitið og brjóstið. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 00:46:57 / selfossar

Petra mín ;)

já það er komin nýr fjölskyldumeðlimur ;) ég fór í dag og fékk alveg yndislegan hvolp á sveitabæ í nágrenninu. Þetta er tík, blanda af border colly og labrador (einhverjar umræður eru þó um að faðirinn sé doberman en ekki er enn hægt að sjá það fyrir víst) Hún er alveg einstaklega góð, aðeins 6 vikna, sefur, leikur sér, borðar og sefur meira ;)  ég er gjörsamlega kolfallin fyrir henni og Skjöldur líka... ég þurfti nú að suða soldið mikið til að fá þetta í gegn en við komumst að þeirri niðurstöðu að hundar hafa það hvergi betra en í sveitinni og ákváðum að prufa þetta og við sjáum örugglega ekki eftir því!! Freyja og kolli fengu sér líka tík úr sama goti sem er mjög svipuð Petru og hefur fengið nafnið Embla ;)

Annars er ég búin að vera mjög slöpp síðustu daga, fór heim úr vinnu í gær fyrir hádegi og er bara búin að vera helvíti tussuleg. Ég vona að ég sé ekki að fá einhverja djöfursins flensu... annars er einhver flensa að ganga og mér finnst mjög margir vera með hor og slef þessa dagana!!

Annars erum við mæðgur bara rólegar hérna heima, Petra steinsofandi í sófanum og ég bara að tjilla hérna með heitt te í bolla og titsjúrúlluna til að sníta mér við hliðiná mér ;)

Skjöldur og Ómar fóru á pöbbarölt inná Akureyri en þar sem að ég er frekar heilsulítil ákvað ég að láta það eiga sig!!

Annars ætla ég ekki að hafa þetta mikið lengra í bili.... þangað til næst, fariði varlega ;)

Maður dagsins: Alexander Petterson fyrir frábæran leik með landsliði Íslands í handbolta í dag!!!

Orð dagsins: oft stoppar strætó á hlemmi ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 13:30:03 / selfossar

snellesjunn....

jæja börnin mín... hvað segiði þá??

Mér finnst þið ekki alveg nógu dugleg að commenta og ég ætla bara hér með að betla comment!! 8)

Annars er bara allt sæmilegt að frétta... ég reyndar fékk mjög skrítna tilfinningu í gær... mér fannst  ég vera ein...ég veit alveg að ég er það ekki og ég er hérna af því ég vil það, ætli þetta hafi bara ekki verið vottur af heimþrá ?? Ég sakna bara allra svo mikið, mömmu, pabba, sigrúnar, ágústu, sæþórs og allra í familíunni.... svo núna þegar allt er orðið hversdagslegt, við búin að koma okkur fyrir, ég farin að vinna venjulega 8 tíma vinnu og er ekki að bíða eftir að fara í vinnu eða komast í frí. Þetta er svona þetta normal líf sem að ég hef ekki lifað svo lengi og kannski líka það sem spilar inní.

En ég er hress og spræk og auðvitað fær maður niðursveiflur stundum sem er bara eðlilegt.... Ég hugsa að allir eigi góða og slæma daga og því betur sem maður vinnur úr vandanum því sjaldnar kemur hann uppá ;) (þetta hljómar eins og mamma)

Ég og Skjöldur erum að spá í að kaupa okkur hjól í sumar ;) Mig langar nú eiginlega meira í hest en hjól... En ætli ég dragist ekki örlítið afturúr í hjólaferðum ef ég kem á honum grána ;) hehehehe.... ég hugsa það ;)

Það er allt gott að frétta  úr sveitinni... Beljurnar baula, kindurnar jarma og kettirnir segja mmmjjjáááá... þannig að ég held að þetta sé allt bara eðlilegt ;) Arnar og Kolli komu í frí fyrir nokkrum dögum og verða í fríi framá sunnudag þannig að það er alveg spurning hvort að kolli og freyja skelli ekki á innflutnignspartý á föstudaginn ;) það væri ekki leiðinlegt ;)

Allt gott að frétta úr eyjum skv. síðustu upplýsingum, mamma bara nokkuð spræk svona miðað við árstíma og veðurfar, pabbi alltaf sprækur, Sigrún syndir að venju og Ágústa gelgjast eikkvað um holt og hæðir ;) hehehe....

En mér finnst voða gaman að ræða svona það sem er helst í fréttum, ég rakst á frétt í gær um Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðanda, það var nú eginlega bara í fyrsta skipti sem að ég hef verið í liði með þeim manni þó að það sé nú kannski ekki frásögu færandi. Hann kærði Þórunni Guðmundsdóttur hæstaréttalögmann til Öryggis-og samvinnustofnunnar Evrópu (ÖSE) fyrir brot á hegningarlögum í kjölfar fréttar hennar á visi.is, þar sem hún sagði forsetaframboð Ástþórs síðast hafa verið nauðgun á lýðræðinu. Hún sagðist mjög ánægð með að fá þessa kæru, hafði haldið að janúarmánuður yrði leiðinlegur en hann hefði bjargað því og það væri ekki á hverjum degi sem hún væri kærð til svo stórra dómstóla sem að þessi er. 

Sko kelling..... kenndi mamma þín þér ekki neitt?? Það er aldrei gott að fá á sig kæru og ég veit alveg að það fylgir því hræðsla að vera kærð til svona stórs dómstóls og sum hræðsla kemur út í hroka og mikilmennsku og ég get ekki betur séð en að það votti pínulítið fyrir því hjá þessu greyi. En annars tel ég Ástþór ekki vera að gera rangan hlut þegar hann býður sig fram, honum langar greinilega að vera forseti og á meðan ekkert í lögum gefur til kynna um að það sé bannað að þá er ekkert hægt að gera í þeim málum.... Bjóddu þig bara fram Ástþór minn.... ekki kæra mig ;)

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili... hafiði það gott í dag og fariði vel með ykkur

Kitta out

Orð dagsins: Farið aldrei að sofa ósátt, vakið heldur og rífist áfram.

Maður dagsins: Ástþór Magnússon.... mér finnst hann lumskt findinn ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 14:58:45 / selfossar

úti er alltaf að snjóa

Kannski ekki alltaf... en í augnablikinu snjóar ;)

Héðan er allt gott að frétta, kuldinn er ærandi og falleg fönn yfir öllu ;)

Ég djúpsteikti fiskibollur í orlydeigi í gær, steikti grænmeti og piparostasósu... það var mjög gott... ég var eginlega bara hissa því þetta var bara tilraun ;) Ég fer með strákana á heimilinu eins og tilraunarottur.... Er alltaf að prufa eitthvað nýtt og læt þá prófa... þeim leiðist það nú ekkert þessum elskum.... Þeir eru soddan matargöt ;)

Ég fór í hádeginu í dag og seldi eitt stykki bílskúr á slatta pening ;) Fór og skrifaði undir og sendi dvo pappírana í ábyrgðarpósti til eyja ;) Klikkuð sala það ;)

Annars erum við bara slök, ætlum að fara í kvöld og tæma kjallarann hjá Freyju og Kolla svo að þau geti nú klárað að koma sér fyrir þessar elskur... Ég var svo að spá í að kíkja í göngutúr og rölta á skáldsstaði ;) það er alveg gott klukkutíma rölt ;)

Úr eyjunum er allt bærilegt að frétta, Sigrún systir er að spá í að kaupa sér nýju imprezuna sem er náttúrulega alveg svívirðilega flott ;) Ég væri sko alveg til í eitt slíkt kvikindi. Það yrði ekki slæmt að bruna um götur Akureyrar á einni svoleiðis urrandi læðu ;)

Ég fór að spá í einu í morgun þegar ég las fréttirnar á visir.is. Þar var grein um stelpu sem að kom aðeins fyrr heim úr vinnunni en vanalega, ákvað að skreppa til mömmu sinnar og kom þá að skóm kærastans síns í forstofunni. Ekki lagaðist það því þegar hún fór innar í húsuð fóru að heyrast kunnulegar stunur úr kærastanum hennar. Hún kíkti inn og sá þau í rúminu í heitum ástarleikjum. Í stað þess að lenja þau eða taka byssu og skjóta þá ákvað hún að taka mynd á símann sinn..................... hefði það verið það fyrsta sem manni hefði dottið í hug ?? NNEEEIII..... En samt klikkað sniðug, búin að dreyfa myndum að þeim út um allt netið ;) hehehe.... BÖMMER ;)

Svo þurfið þið að hjálpa mér að finna uppá eitthverju handa Skyldi í afmælisskjöf... hann á afmæli í næsta mánuði og ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gefa manninum :^)

En ég nenni ekki að hafa þetta mikið lengra... Hafiði það sem allra best.

Orð dagsins:

Besta forvörn morgundagsins er að nýta daginn í dag!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 10:39:22 / selfossar

einn dans við mig.....

Já ef að ég hefði nú bara dansað einn dans á laugardaginn að þá væri ég ekki svona illa haldin af strengjum í dag. Ég er alveg eins og spítukarl ;) En það var alveg klikkað stuð á sveitaballi á laugardaginn, mjög góður matur og allir alveg blekaðir af áfengisvímu ;) heheh... Tengdapabbi var alveg uppá sitt besta, við tókum léttan snúning saman (að sjálfsögðu) og skemmtum okkur mjög vel ;) Ég og Skjöldur dönsuðum svo við svona c.a. 30 lög eða svo og vorum ekki lengi að sofna eftir þetta ;) YNDISLEGT ;)

En voruði búin að fatta að það er kominn 14.janúar.... 2008!!!!!! Mér finnst tíminn líða ALLTOF hratt... vikurnar fljúga gjörsamlega áfram.

Annars er bara allt gott að frétta, það var ekki nema -18°c hér um helgina. Mjög fínt... maður fraus að innan við að draga andann. En það er einn kostur við veðrið hér að það er nánast alltaf logn og enginn vindkæling.

Annars er okkur skötuhjúum farið að hlakka geggjað til að fara út til Kanarí. Hugsa alltaf um þetta þegar ég staulast syfjuð út í kuldann að skafa bílinn og keyra í vinnu í snjónum og hálkunni. Það eru bara 74 dagar þangað til við verðum að spóka okkur í sólinni ;) vúúhúú... (á spáner gott að djammogdjúsa diskótekunum á;) ;)

Annars er bara almenn gleði í vinnunni... við ætlum að skella okkur í svaka vinnuferð 2. febrúar 2008 á mývatn og djamma eins og vindurinn, borða dóðan mat, fara í gókart og í jarðböðin ;) mmmmm.... geggjað ;)

Svo næsta föstudag stefnir allt í svaka innflutningspartý hjá Kolla og Freyju á Gilsá, 9. Febrúar er svo Þorrablót og svo einhvertíman þegar færi gefst ætlar Erla Skarp að bjóða í partý... þannig að það er bara allt að verða vitlaust í djammi á nýju ári ;)

Frá eyjum er allt eins að frétta eftir síðustu fréttum að dæma, mamma, pabbi og Ágústa eru í borginni, Ágústa hjá tannsa og mamma að bíða eftir nýju MS-lyfjunum. Fyrstu skömmtunum verður úthlutað núna á næstu dögum og mjög ólíklegt er að hún verði í þeim hópi. En að sjálfsögðu heldur maður í vonina og biður Guð um allt það besta.

Íbúðarmálin eru öll að koma til, ég er langt komin með að selja mína, Skjöldur búin að setja sína á sölu og getur fengið 12 millur fyrir hana. Við veðum bara í góðum málum eftir þessi viðskipti ;)

Ég og Skjöldur vorum ofsa dugleg í gær, drifum okkur út í göngu eftir kvöldmat o g röltum til Freyju ;) Skjöldur fékk svo hælsæri af skónum sínum þannig að Freyja skutlaði okkur til baka ;)

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... bið ykkur vel að lifa og gæta hvors annars ;)

Over and out :***

Maður dagsins: Kiddi í Ytra- Felli, yndislegur maður sem mér þykir mjög vænt um.

Hljómsveit dagsins: audioslave

Orð dagsins:

Það eru 2 leiðir til þess til þess að verða ríkur...
Afla meira eða girnast færra !

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 16:55:22 / selfossar

Sælt veri fólkið....

Dagurinn hjá mér er búin að vera alveg frábær... eða þannig!!

Ég vaknaði um 08:15 í morgun og klæddi mig og endaði næstumþví í gólfinu.  Það er eitthvað furðulegt sem gerist í mér þessa dagana á meðan ég sef... mig svimar svo hræðilega þegar ég vakna og yfirliðstilfinningin er ógeðsleg.. en þetta er fljótt að líða hjá eða tekur u.þ.b. 15 mínútur eða svo. Allt í lagi með það... ég fer og laga mig í framan, greiði hárið og gerði sár á eyrað á mér við það því að æsingurinn var svo mikill (einhverra hluta vegna)... allt í lagi.. ég kveiki á útvarpinu og fæ mér sheerios með mjólk og þurfti náttúrulega að hlusta á ruglið í þeim á bylgunni á meðan um að drepa í sígarettunni. Þetta er ekkert sem að nikotínsjúklingur þarf á að halda í morgunsárið þegar hann er ekki búin að reykja, eftir svefn, í marga klukkutíma. Áfram líður tíminn, Kristín fer í skó og peysu og út í bíl... það var náttúrulega mínus milljón gráður í höfuðborg norðurlands og maður gekk á vegg og nánast fraus í sporunum og auðvitað var ég svo klár að fara ekkert út og starta bílnum. Nei Kristín þurfti að skafa og setjast inní frosinn bílinn og ég get svariða að ef ég hefði verið asni og sleikt stýrið að þá væri tungan enn föst við það. Þegar ég var svo búin að keyra í u.þ.b. 30 mínútur og komin inn til Akureyrar var loksins farið að verma aðeins í bílnum en nei... þá þurfti ég að leggja og labba inn í vinnuna þar sem að fólk byrjaði að æpa lífinu á mig og var almennt með skítkast og svívirðingar út í allt og alla ;)

Mjög skemmtilegt sem sagt og ég er ekkert leið yfir því að vinnudagurinn er að taka enda og ég get farið heim, eldað kakósúpu, fiskibollur, kveikt á kertum, farið í bubblubað og knúsað svo kallinn minn yfir sjónvarpinu í allt kvöld ;)

En annars er ég bara spræk og þó að frásögn mín af morgninum sé nú kannski ekki æðisleg að þá er ég nú samt í stuði og er góð íenni og svona (ég veit að þið þurfið ekki að vita það en hva...)

Ég og Sköllinn minn ætlaum að stefna á það að kíkja eikkvað á skrall á laugardaginn. Brietta, færeyska au-pair stelpan sem er á Ytra-Felli ætlar að kíkja með okkur og líklega Freyja systir líka ;) það verðu fjör ;)

Ég nenni ekki að blogga meira í bili... Fariði varlega blómin mín og muniði að reyna að sjá alltaf það góða í öllum hlutum, það gerir lífið skemmtlegra.

Maður dagsins: Pabbi minn :whut: ég sakna hans svooo mikið og allra heima í eyjum:^)

Orð dagsins: Vertu vinur vina þinna, þú gætir þurft á því að halda einn daginn.

Slúður dagsins: Heyrst hefur að Kolbeinn Hjaltason ætli ALDREI til útlanda.... ;)

(Slúður dagsins er aðeins til að skemmta fólki en ekki til að særa neinn og byðst ég innilegrar afsökunar ef að svo er)


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 11:21:06 / selfossar

Það er komin bloggítæm ;)

Jújú... Jólin, áramótin og þrettandin búin og ískaldur janúarmánuður tekin við í öllu sínu veldi ;) Ekkert slæmt um það að segja svo svo sem.... ég panntaði ferð fyrir okkur skötuhjú til Kanarí og förum við 1. apríl og erum væntaleg heim 15. apríl ;) Fínt, kemur maður heim rétt fyrir ammælið ;)

Talandi um ammæli... það verður rudda ammæliboð hjá mér 19. apríl í Nesi ;)

Annars held ég að allt sé eins og það egi að vera... lífið gengur sinn vanagang..

Við fórum í þrettándahangikjöt á skáldstaði í gær... ég get svariða.. það er ekki hægt að fara í mat þangað, maður étur náttúrulega svo ógeðslega mikið að það er svakalegt. Ég held án djóks að ég hafi aldrei farið frá skáldsstöðum án þess að líða illa af seddu. Ef maður borðar ekki þangað til það er nánast farið að vella út um eyrun á manni að þá er maður spurður hvort manni þyki maturinn vondur. Svo ef að maturinn er ekki kláraður (ég er að tala um 7 kíló af kjöti á góðum degi) þá er talað um að það verði vont veður daginn eftir og ekki vil ég að mér verði kennt um það ;) heheh... en það er alltaf gaman að koma þarna og alltaf geggjaður matur og skemmtilegar umræður ;)

Við vorum í smá framkvæmdum í húsinu okkar í gær, byrjuðum á því að taka niður allt jóladót og koma því í geymslu, þrifum allt húsið, tókum búrið alveg í gegn, hentum fullt af drasli, þrifum allt og nú er þetta bara að verða alveg ljómandi. Strákarnir byrjuðu svo á holinu frammi og sköfuðu gólfið, byrjuðu að mála og ætla svo að reyna að klára þetta næstu daga.

Ég er að verða bara nokkuð ánægð með litla heimilið okkar ;) Þetta er allt að koma... ég á reyndar eftir að tæma mína íbúð heima og samkvæmt fasteignasalanum er mjög líklegt að ég sé að selja.

Ég spjallaði við Ernuna mína í gær og hún ætlar að reyna að kíkja á mig í febrúar og reyna að draga Erlu með ;) það verður geggjað ;)

Annars gengur bara vel í vinnunni, fólk öskrar á mann eins og sinn versta erkióvin og er ég alveg hætt að taka það inná mig og passa að halda ró minni þó að þrístingurinn vilji stundum hækka töluvert ;)

Annars er ég bara happy og lige glad eins og vanalega ;) sátt við lífið og tilveruna og nýt þess að vera til ;)

Maður dagsins: Áramann Hólm Skjaldarson, tengdapabbi minn ;) yndislegur maður sem tekur öllum með opnum örmum, er algjör grínari og yndisleg persóna í alla staði.

Orð dagsins: I intend to live forever... so far... so good....

 dagsins: Heyrst hefur að Berglind Ósk sé ólétt... ef svo er, innilega til hamingju og gangi ykkur vel ;*****

(slúður dagisins er aðeins til að létta fólki lífið, ekki til að særa neinn. Ef einhver er ósáttur eða sár vegna þess biðst ég innilegrar afsökunar)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 08:54:40 / selfossar

Komdu með mér í gammlárspartý, gamlárspartý, gammlárspartý.....

Ég ákvað að setja hérna inn aftur færsluna mína um það sem var markvert á þessu ári.

Krakkar mínir... árið er að verða búið... mér finnst það stundum gleymast í jólaösinni að fólk hugsi um afrek sín á árinu, þakki fyrir allt sem þeir hafa fengið og sem árið hefur gefið þeim og athuga hvort eitthvað mætti bæta eða gera öðruvísi á því næsta, það kemur dagur eftir þennan dag með nýjum möguleikum og breytingum.

Annars er árið hjá mér búið að líða nokkuð vel og smurt fyrir sig. 'Eg byrjaði árið 2007 á spáni eða nánar til tekið á Grand Kanarí, þar sem ég eyddi jólum og áramótum með fjölskyldunni minni. Það var yndislegt að byrja árið í sólinni og hitanum með þeim sem manni þykir vænst um. Þegar við komum heim flaug tíminn áfram þegar veruleikinn tók við og ég snéri aftur til vinnu á Reyðarfjörð. Í maí varð ég nú reyndar fyrir miklu áfalli þegar ég missti einn af mínum bestu vinum og vinnufélaga í hendur krabbameins og það stríð tók fljótt af. Á sama tíma sparkaði kærastinn mér (mjög svo heppilegur tími og fallega gert) En lífið heldur áfram og ég er betri manneskja fyrir vikið. En sumarið nálgaðis í öllu sínu veldi.

'Eg skellti mér á Hróarskeldu í annað skipti, eftir erfiðan vinamissi og sambandsslit, bara til að sleppa mér og endurnýja orkuna og skemmti mér alveg konunglega þar þrátt fyrir mikla úrkomu og mjög mikla drullu. Ég var í geggjuðum félagsskap, sá geggjaðar hljómsveitir og þetta var algjört ævintíri sem mun fylgja mér alla æfi.

Veruleikinn tók svo við, ískaldur á klakanum en það var allt í lagi því það styttist óðum í atburð ársins... Atburð sem ég byrja að hlakka til um leið og hann kárast ár hvert, atburð sem ég get ekki verið án og atburð sem er skemmtilegastur í heimi!!!!! Já það kom þjóðhátíð \ Hún gekk mjög vel og var afar skemmtileg... ég og Skjöldur byrjuðum saman á mánudeginum fyrir þjóðhátíð og saknaði ég hans ægilega um þá helgi en ég skemmti mér samt eins og vindurinn og var í banastuði \

'Eg stoppaði nú ekki lengi á klakanum eftir þetta. Ferðinni var haldið aftur til Danaveldis í djammferð með Dóru og Önnu Rún. Sú ferð var jafnvel enn betri en fyrri (þó ég geti nú ekki gert upp á milli) Þetta var svo mikið djamm að ég held að köben verði ekki söm á eftir \ heheh....

Eftir þetta skemmtilega og viðburðarríka sumar fór maður að taka lífið alvarlega og hugsa útí framtíðina. Ég sagði upp hjá ESS og tók þá ákvörðun að flytja með ástinni minni til Akureyrar. Þetta var mjög stór ákvörðun en ég var samt svo viss um að þetta væri það sem ég vildi og það sem mér væri ætlað \ ( ég er farin að tala eins og Þórhallur miðill )

Eyjafjarðarsveitin er staðurinn minn!!! Hér líður mér best, í rónni og kyrrðinni, með dýrunum og  manninum sem ég elska meira en allt í þessu lífi. Mér hefur ekki liðið svona vel síðan ég var ungabarn og gerði ekkert nema láta mér líða vel og láta dekra við mig.... núna er ég komin í sömu stöðu. Ég er eins og kóngur í mínu konungsríki, í sveitinni, með manninum sem vill allt fyrir mig gera.

Þetta voru aðal toppar í báðar áttir á árinu og vil ég vil hér með þakka öllum sem komu að því að gera þetta ár af árinu sem hefur þroskað mig mest, gefið mér mest og mótað mig í það sem mig hefur alltaf dreymt um að verða og gera í lífinu. Ef þú mannst eftir einhverju sem ég er að gleyma, endilega commentaðu \ 

'Eg vona að ég hafi ekki drepið ykkur úr leiðindum með þessari lesningu um árið 2007 og vona að árið hafi verið ykkur jafn lærdómsríkt og þakkarvert og mitt \ 

Takk fyrir liðnar stundir á liðnum árum og ég óska ykkur velfarnaðar á því nýja og vona að það verði ykkur gæfuríkt og farsælt.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 15:27:09 / selfossar

Kurva klukk.....

Já hún erna mín klukkaði mig og get ég á engan hátt komist hjá því að taka þeirri áskorun og segja ykkur frá 7 hlutum sem þið vitið ekki um mig.

1. 'Eg er hrædd við BELJUR: ég skil þetta ekki... kannski er það vegna þess að ég veit ekki hvar ég hef þau og þau gætu vel drepið mig eða stórslasað ef þau vildu.

2. 'Eg laðast mjög af yfirmanni mínum: Það kom í ljós í síðustu viku að yfirmaður minn hér í miðlun er fjallmyndarlegur ungur maður sem heitir Andri. Hann er sjúklega sætur, MJÖG skemmtilegur og alls ekki þessi yfirmannstýpa eins og sumir yfirmenn eru :) (look bud not tuch)

3. 'Eg hef verið með giftum manni: Skammast mín nú doldið fyrri þetta í dag en ég átti í árslöngu ástarsambandi við giftann mann og lét alveg hafa mig að fífli.

4. ég hef sofið hjá bróðir kærasta míns: það vita þetta nú margir en kannski kemur þetta öllum á óvart.... jú ég og Arnar Hólm vorum aðeins meira en félagar í ár eða svo (með hléum reyndar)

5. 'Eg er tilbúin að flytja alfarið frá Eyjum: Það er soldið sárt að sjá þetta en... hér finn ég mig svo miklu miklu betur en ég hef nokkurtíma gert í eyjum. Hér finnst ástinni minni best að vera og ég verð að segja að hér finnst mér líka best að vera :$

6. 'Eg veit ekkert betra en að vera með Skildinum mínum: kannski ekkert meira um það að segja.... það er bara solleiðis..... Elskann af öllum mínum lífs og sálarkröftum.

7. Mamma er sterkasta kona sem ég hef hitt á æfinni: Hún er hetjan mín, hún ert sterkari en allt, hún er duglegri en allt og hún er mér allt !!!!

Jæja Erna mín.... There you have it ;) þetta tókst af lokum og er þá komið að mér að klukka eikkvern sem ég veit eiginleg ekkert hver ætti að vera. Ég klukka bara Erlu smellu ;)

 

Maður dagsins: Erna Stefnisdóttir (þó hún sé ekki maður er hún samt alveg yndisleg og betri helmingurinn minn og ég elska hana mestast og á alveg skilið að vera maður dagsins þó hún sé ekki maður ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 14:23:56 / selfossar

Lægð yfir landinu....

Það heyrist greinilega á mörgum sem hringja inn í fyrirtækin að það er lægð yfir landinu. Geðvonska og reyði ásækir fólk og eflaust er hluti af þessu svokallað "jólastress"

Ef þú ert pirraður, reyður eða hreinlega bara í brjáluðu skapi þá mæli ég eindregið með því að þú stoppir, hugsir um af hverju þú ert pirruð/pirraður og reynir að slappa af og anda áðuren þú lætur reyðina bitna á öðrum sem á það alls ekki skilið og gerir þig að fífli fyrir vikið ;) manni langar stundum að spyrja fólk "ertu grillaður í skallanum?? hvaða tegund af steik ertu?? Eru mamma þín og pabbi systkini??"

En annars er ljómandi gott veður hér fyrir norðan... það er frekar hlýtt, örlítill vindur og rigning af og til ;)

Það stefnir í hörku spennandi helgi alveg... jólahlaðborð í kvöld með Kidda og Laugu og kolla og Freyju... Á morgun er það svo jólahlaðborð með vinnunni og ég hugsa að það verði alveg magnað fjör ;) þannig að það stefnir í algjöra jólaupphitun um þessa helgi.

Annars er ég að vinna á morgun frá 10-16 sem verður örugglega gaman ;) það er rólegt á laugardögum og bara gott tjill að sitja hér og tjatta við fólk. (þó það sé lægð yfir landinu) ;)

Við ætlum svo að reyna að klára allar jólagjafir eftir vinnu á laugardaginn og þegar það er búið þá er ég tilbúin í jólin ;)

En það er ekkert að frétta ennþá af íbúðinni minni... ég fékk tilboð um daginn uppá 7 kúlur, ég bauð á móti 7,4 kúlur og síðan hef ég ekkert heyrt :klikk: En ég veit það alveg að þessi íbúð fer eins og skot. Þetta er eina íbúðin í þessari litlu krúttlegu stærð á markaðnum í dag. Ég vona bara að ég egi ekki eftir að sjá eftir því að hafa selt hana ;)

Ég held að þetta sé komið gott í bili ;) lólólin lólólin aaaaaalllllllstaðar...... hafiði það gott dúllur

Maður dagsins: í þetta skipti ætla ég að kjósa einhvern yfirvegaðann, rólegann og skapgóðann mann (bara af því að það er svo mikið af dónalegu fólki í heiminum) og kýs því Pabba minn Halldór Hallgrímsson sem er alltaf í góðu skapi.... allavega alltaf þegar ég tala við hann ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
20. mars 2010
Leitarbox

ESS gengið ;)
�?�?�?¾ETTA ER ALLT A�?�?�? KOMA
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 961 dögum